laugardagur, september 25, 2004

Þetta gengur ekki lengur... Maður verður að skrifa nokkrar línur.
Margt hefur drifið á daga okkar vodka-bræðra síðastliðna mánuði. Við stóðum að frjálsri dreifingu auglýsinga bæklinga á Fiji eyjunum, tókum að okkur að kenna blindum að lesa, þróuðum Atkins bjórinn, erum að þróa Atkins Hamborgarann, tókum að okkur 100% starf sem áfengissmakkarar í útibúi ÁTVR á Selfossi(þá meina ég útibú frá okkar ÁTVR) höfum reyndar ekki enn fengið greitt, helvítis svikarar þessir sellarar.... En sem sagt margt hefur gerst og enn fleirra sem að við munum varla eftir eða þá að við viljum ekki muna eftir.
Þessa dagana þá hef ég tekið mér það bessaleyfi að ræða við Davíð utanríkisráðherra um það hvort að ekki sé hægt að gera Þorlákshöfn að sjálfstæðu ríki.... Samningaviðræður ganga hægt og það er víst ástæðan fyrir því að kennarar eru komnir í verkfall. Í stuttu viðtali við Davíð þá sagði hann að þetta snérist allt um forgangsröðun. Davíð:"Þetta snýst allt um forgangsröðun" takk fyrir gott spjall Davíð. En sem sagt Kennarar fá ekki launahækkun fyrr en það er búið að semja við okkur....hehehe....
Aldregi að vita nema að ég riti inn nokkur orð í framtíðinn
Með rasssvitann að leiðarljósi og nágranna í hádeginu, bið ég að heilsa
Haddi Burgundy biður að heilsa og Stay Classy Þorlákshöfn