sunnudagur, október 03, 2004

Ja hérna....vodkinn lifir enn!
Bloggleysi má kenna svörtum tíma í mínu lífi þar sem skin og skúrir voru algengari en klamidía hjá djammdýrinu (Hermo). Á tímabili fannst mér ég vera orðinn málaliði guðs og Champ talaði við mig, gaf mér skipanir um að fara á hundasýningar, hlýðninámskeið, leigja "bitches like it doggystyle". Mér var stjórnað af æðri mátti. Ég rankaði oft við mér á hundasýningu og vissi varla hvað ég héti lengur. En þessi tími er mér að baki hehehemmm sem betur fer og heilbrigðara líferni tekur við undir formerkjum Atkins bjórsins....
En tíminn líður og fólkið með....
Eins og Hallgrímur Burgundy kom inn á þá hefur margt drifið á daga okkar og er erfitt að setja það í bundið mál. En greinilegt er að vodkinn lifir í æðum okkar allra. Vodkinn er sameiningartákn ungmenna í þorlákshöfn (haddi þú ert of gamall). Vodkinn styður sjálfbæra þróun í fiskiðnaði og vill að það séu 2 bílar í hverjum bílskúr og ættleiddur sómalíubúi á hverju götuhorni. Hvar var Ólafur Ragnar þegar þú greindist með kynfæravörtur á lokastigi? Vodkinn í forsetastólinn... (þessi auglýsing var í boði vodkans, þar sem þú skilur aldrei rassgat í pistlunum)
En nú nálgast hestamannaball og fólkið í þorpinu byrjað að blanda spritti í vodkann sinn og gera sig ready fyrir sveitt ball að hætti þorlákshafnarbúa. Án efa munu verða tekin þarna ein skítugustu dansspor síðan guðni jun fór að drekka. Er kannski of snemmt að koma með spár? Hver mun duga lengst? Hver mun deyja? Er kannski spurning um að fara með vodkann á blogdrive.com? Er diet appelsín betra en venjulegt? Var Gunnar á hlíðarenda í alvöru kona? svarið mér því, já svarið mér því!!!!! þykist vita allt helv...djö...bastarðar!
Við erum nú rétt að koma okkur í gírinn, er ekki málið að reisa vodkann upp frá dauðum, gefa honum í glas og bera merki hans hátt? Meira um það uuuuuu seinna! "dansar við áfengi" kveður að sinni...