föstudagur, október 22, 2004

Þá situr maður hérna í skólanum og lætur hugann reika langt frá líkamanum enda að koma helgi og þá tekur við jah nokkrir bjórar og júh kannski eitthvað meira en það. Hver er dagskráin? Langt síðan maður skrifaði hérna síðast og margt búið að gerast...
Árni Grái er enn við sama heygarðshornið og á meðan hestamannaballið var hélt hann opið hús í hesthúsaröð 4 þar sem boðið var upp á roofies (nauðgunarlyf) og búningaleigan "hey kanína" sýndi úrval sitt af hestabúningum og þess konar. En ballið var bara helvíti fínt og getur maður ekki kvartað (enda man ég voða lítið). Það var allt fullt af fólki og virðist ég geta lent í hundasamræðum við öll tækifæri við ótrúlegasta fólk!!! Kallinn man nú ekkert eftir einhverri hljómsveit á þessu blessaða balli og hvað þá fólkinu.Hvernig skemmti fólk sér þarna? Körfuboltinn stóð vaktina í hurðinni og varð ekki annað að sjá en þeir hafi... ekkert skemmt sér.
En góð tíðindi....Hallgrímur fannst að lokum þar sem hann hafði slátrað belju á trúarlegan hátt og lá fyrir aftan másabakarí þar sem hann var að gæða sér á gömlum snúðum og kleinum frá Mása the Beiker! Gott að kallinn sé kominn aftur og er hann sagður í ótrúlegu formi miðað við að hann er búinn að lifa á ruslfæði og gruggugum landa seinustu vikurnar. Þegar hann var spurður út í þetta sagði hann:"aldrei liðið betur" takk fyrir það haddi minn. Gott að sjá að það er einhver að lifa drauminn. Með Bjarney í annarri og hemúlinn í hinni, barn um helgar og hamborgarar í hvert mál...lifi byltingin!!!
"Gagnrýna áherslu pólitískrar landfræði á pólitíska leiðtoga ríkja...." aaaaaaaahhhhhhhh þetta gerir mann geðveikan. Holgóma veðurfréttakonan á stöð eitt er að kenna manni feminíska/pólitíska/heimspekilega hugsun á landfræði.

En ég lenti nú heldur betur í honum bröttum á þriðjudaginn þegar ég vakna upp með tannpínu á við pyntingarnar í þorskastríðinu (man eftir því. hnífar...sprautur...svipur...mmmmmmmm). En ég fékk nú neyðartíma hjá guggu frænku, betur þekkt sem gugga tönn. Þegar ég mæti er hún bara tilbúin með töngina og ákveðið að draga úr manni tönn. Jú þá er nú best að deyfa mann aðeins...eina sprautu.....tvær sprautur neeeeeee tvær og hálfa sprautu fullar af deyfingu. Svona eftir á nefnir hún við mig að þeir þurfa eina sprautu til að deyfa norskan fíl á fengitímanum....hlýtur að vera sterklega tónuðu vöðvarnir mínir sem hafa sogað í sig deyfinguna eins og Hemmi svampur (djammdýrið) með bjór!!!!
En meira seinna....íslenska útgáfan af Chuck Norris kveður....