sunnudagur, maí 15, 2005

EXTRA EXTRA...READ ALL ABOUT IT....STEINAR BÚINN Í PRÓFUM OG GETUR SKRIFAÐ. VAR SVEITTARI EN SKRAMBINN NIÐRI Í BÆ Í GÆR TALANDI SÆNSKU OG RRRRRRUGL.

Jújú mikið rétt drengurinn er loksins búinn í þessum prófum. Djöfull getur maður orðið snargeðveikur af því að lesa undir þennan viðbjóð. Hvað fær maður svo út úr þessu? Það er spurningin. Annað en að maður man lesefnið í svona hálfan mánuð eftir á? CRAP!

Er ekki best að nefna aðeins hérna afmælið hans Trölla. Jújú karlinn er að verða maður, byrjaður að fá hár undir hendurnar (kemur seinna hjá mér vegna líkamlegs óþroska). Vill þakka honum fyrir þessa prýðis skemmtun sem þar var og það vantaði ekki áfengið(bollan), kellingarnar (Strúna) og auðvitað félagsskapinn (ekki þú Guðni). Flestir voru fullari en Árni Grái í bindindi á föstudagskvöldinu og allir að háma í sig sveittar veitingar. Johnny Ólafs sá fyrir skemmtiatriðum og strippaði fyrir okkur þarna.
Afmælisgjöfin var ekki af verri endanum heldur en heill bíll. Skemmtilegur málmgljái einkenndi þennan fagra bíl (það nýjasta í bílaiðnaðinum) ásamt 22” low profile felgum og tvöfaldri hásingu að aftan við hægri öxulinn. Hér má sjá gripinn...

Myndinni var stolið úr myndaalbúmi Auðar G.
Jæja ég er allavega kominn af stað með að blogga aftur nú þegar ég hef meiri tíma og get ég lofað því að næsti pistill verður skemmtilegri. Verð að halda áfram að pakka fyrir jarðfræðiferðina og ætti ég því að geta bloggað um næstu helgi. Lúllinn dúllinn kveður að sinni...

æ já guðný!

2 Comments:

At 6/02/2005 5:18 PM, Anonymous Guðni Jun said...

hehe já þetta var hin mesta skemmtun...mannstu ekki eftir góða drullusokknum ehhehehhehehe þvílík snilld!!!

 
At 6/13/2005 9:05 PM, Blogger Begga said...

Nákvæmlega, próf eru bara fyrir aumingja en ekki töffara eins og okkur skoh!!! Fella niður þessi próf og bara kúl fólkið fær að halda áfram í skólanum og fá allar góðu vinnurnar...

 

Sendu inn athugasemd

<< Home